Að hafa þessa starfsemi svo nálægt byggð og fjölförnu útivistarsvæði er algjörlega óásættanlegt

Margar nýlegar rannsóknir sýna að hávaðamengun getur haft mjög skaðleg áhrif á heilsu manna og dýra, vísindamenn hafa nýlega uppgötvað að viðvarandi hávaði veldur langvarandi streitu hjá dýrum og mönnum.

Fólk með hesta hafa þurft að flytja frá kollafirði vegna skot-hávaða.

Skothríðin á Álfsnesi hefur haft gríðarlega neikvæð áhrif á fuglalífið í kollafirði. Einn íbúi sem hefur búið þar í yfir 50 ár sagði að eftir að skotsvæðin komu hafi fuglalífið horfið. Má þar nefna fálka og uglur sem leituði sér mat í mýrinni við móavík.
Heyra má á myndbrotinu sem var tekið upp á síma, að eitt af skotunum lendir e.t.v. á steini og endurkastast, hver má vita hvert.